Samantekt um þingmál

Verndar- og orkunýtingaráætlun

583. mál á 152. löggjafarþingi.
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.

Markmið

Að auka orkuvinnslu í landinu og stuðla að hraðari orkuskiptum.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að stækkanir á virkjunum sem ekki hafa áhrif á óröskuð svæði þurfi ekki að fara í gegnum málsmeðferð rammaáætlunar.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um verndar- og orkunýtingaráætlun, nr. 48/2011.

Kostnaður og tekjur

Áhrif á ríkissjóð eru metin óveruleg ef nokkur.

Afgreiðsla

Samþykkt með lítils háttar breytingu.


Síðast breytt 27.03.2023. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.